SOLOPRENEUR: Erasmus+ verkefni sem hvetur til atvinnusköpunar á dreifbýlum svæðum Evrópu

  • 10/02/2020

TIL BAKA





SOLOPRENEUR: Erasmus+ verkefni sem hvetur til atvinnusköpunar á dreifbýlum svæðum Evrópu

10/02/2020



Þekkingarnetið átti sinn fulltrúa þegar samstarfsaðilar í SOLOPRENEUR verkefninu funduðu á frönsku eyjunni Martinique í Karabíska hafinu nú á dögunum. Verkefnið er fjármagnað af Erasmus+, samstarfsáætlun Evrópusambandsins. Samstarfsaðilarnir eru 8 frá 6 löndum; Belgíu, Kýpur, Frakklandi (Martinique), Íslandi, Ítalíu og Spáni.

Í SOLOPRENEUR verkefninu er unnið að því að hvetja til sjálfstæðs atvinnureksturs í dreifbýlum svæðum Evrópu þar sem fjarlægðir og stundum einangrun geta aukið líkurnar á atvinnuleysi. Samstarfsaðilarnir hafa búið til kennsluefni fyrir þá sem vilja hefja eigin rekstur.

Á fundinum var farið yfir vinnu síðustu mánaða í undirbúningi og gerð námsefnisins. Á vef verkefnisins er efnið aðgengilegt á 6 tungumálum.

Þekkingarnetið mun kynna SOLOPRENEUR verkefnið frekar á næstu misserum og prufukeyra námsefnið.



Frekari upplýsingar um SOLOPRENEUR:

www.solo-preneur.eu

hac@hac.is

www.hac.is/samstarf/